Færsluflokkur: Bloggar
3.5.2007 | 14:02
Sennilega fleiri en einn hrópandi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2007 | 12:30
líkamar kvenna í tómarúmi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 14:25
Börnin okkar
Því miður sjáum við fleiri og fleiri dæmi um illa meðferð á börnum á opinberum uppeldisstofnunum, sem rekin voru á vegum hins opinbera á árum áður. Það góða við þessar fréttir, ef svo má segja, er að verið er að opna umræðu um hið falda í þjóðfélaginu, sem svo sannanlega þarfnast umræðu. Hver ber ábyrgð í þessum málum? E.t.v. allir þeir sem lokuðu augunum fyrir hinu augljósa?
Hvað með öll börnin sem voru send í sveit á einkaheimili? Hvernig voru þessi heimili? Sum góð, auðvitað, en önnur afar slæm. Fyrir mörgum árum átti ég samtal við geðlækni ef erlendu bergi brotnu, sem ég kynntist í gengum Stígamót. Hún hafði eitt sinn á orði, að furðulegt væri hve íslenskir foreldrar væru með eindæmum kærulausir varðandi þau sveitaheimili, sem þau sendu börn sín til sumardvalar, enda þekkti hún mörg ljót dæmi.
Hvað var þetta (og e.t.v. er) með íslendinga? Var bara með öllu fullkomið að heimilið eða stofnunin væri utan þéttbýlis til að fullkomlega væri hægt að loka augunum og slaka á?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 14:18
Hvar áttu þjóðlendur að finnast?
Þegar lagt var upp með að setja s.k. þjóðlendulög var alveg skýrt út frá greinargerð með frumvarpinu (sem varð að þjóðlendulögum) að dæma, að verið var að setja lög um hugsanlega eigendalausar lendur á miðhálendi Íslands.
Reynslan af starfi Þjóðlendunefndar sýnir allt annað, enda verið úrskurðað um þjóðlendur allt niður að mörkum þéttbýlis í Reykjavík, sem er eins og kunnugt er allfjarri miðhálendinu.
Í ljósi framangreinds er hálfhlægilegt, en auðvitað betra en ekkert, að sjá að stjórnarflokkarnir, sem að sjálfsögðu bera ábyrgð á stjórnsýslunni á kjörtímabilinu, eru eitthvað að reyna að klóra í bakkann og draga í land varðandi yfirgengilegar kröfur gagnvart landeigendum.
Má vænta þess, að réttlátari kröfugerð af hálfu ríkisins í þjóðlendumálum sé í vændum?
Má vænta þess, að slík réttlátari kröfugerð, ef af verður, endurspeglist í dómsmálum sem fjalla um eldri úrskurði varðandi þjóðlendur vs. eignarland?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2007 | 16:01
Eru börn þolendur eða gerendur?
Í dag birtist eftir mig grein í Fréttablaðinu (á bls. 24), en tilefni hennar var furðulegt og óviðurkvæmilegt orðaval í frétt um karl sem úrskurðaður hafði verið í gæsluvarðhald vegna barnakláms og þess að hann hafði sýnt vilja í verki til að hafa kynferðismök við 13 ára barn. Orðalagið sem um ræðir, í frétt blaðsins 9. febrúar var: ... myndskeið er sýndi barn hafa samfarir við fullorðinn mann .....
Nú hefur mér verið bent á, að orðalagið er tekið beint upp úr úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur (sjá www.haestirettur.is, málsnr. 75/2007). Þar sést að verið er að fjalla um skýrslutöku hjá lögreglu 5. febrúar, í þessum kafla úrskurðarins, en þar segir orðrétt: "þá sagði hann aðspurður um myndskeið er sýni barn hafa samfarir við fullorðinn mann að hann geti ekki mótmælt ...." Nú er spurn, er það lögreglan sem notar svona orðalag?
Eins og kunnugt er, eru orð tjáning hugsunar þess sem talar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2007 | 13:23
Er gaman að blogga?
t.d. þjóðfélagsmál, fréttir o.fl. Nú hef ég látið verða að því, að
stofna blogg, en tíminn mun leiða í ljós hvort ég verð dugleg eða
ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2007 | 13:16
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sjöfn Kristjánsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar